Vafrakökur
Við notum vafrakökur til að safna upplýsingum svo hægt sé að bæta upplifun notenda af vefnum.
mobile
Týndur eða stolinn farsími
Ef símtæki þitt týnist eða er stolið er nauðsynlegt að tilkynna slíkt til þjónustuvers Hringdu sem allra fyrst. Þetta á sérstaklega við um þjófnað erlendis en þá er tilgangurinn oft að nota SIM-kortið til að hringja í gjaldskyld númer. Það gæti haft í för með sér reikning upp á mörg hundruð þúsund krónur.
Utan opnunartíma þjónustuvers Hringdu má senda tölvupóst á hringdu@hringdu.is eða senda skilaboð á Facebook síðu Hringdu. Mikilvægt er að taka fram kennitölu áskrifanda og símanúmer áskriftar.