Vegna árshátíðar Hringdu er verslun lokuð 4. september og opin 12-18 mánudaginn 7. september. ATH: Ekki verður hægt að virkja rafræn skilríki í versluninni 7. september. Þjónustuver er opið 4. og 7. sep frá 10 til 18. Óbreyttur opnunartími um helgina.
Vafrakökur
Við notum vafrakökur til að safna upplýsingum svo hægt sé að bæta upplifun notenda af vefnum.
mobile
Hringiþjónusta
Neðangreindar hringiþjónustur eru í boði á farsímadreifikerfi Hringdu og eiga ekki við um heimasíma. Fyrir frekari upplýsingar bendum við þér að hafa samband við þjónustuver.
Hringiflutningur
Þú getur notað hringiflutning til að áframsenda símtöl sem koma í farsímann þinn yfir í annað símanúmer innanlands.
Eftirfarandi skipanir eru í boði vegna flutnings:
Ekki svarað
Virkja: **61*símanúmer#
Afvirkja: ##61#
Utan þjónustusvæðis / slökkt
Virkja: **62*símanúmer#
Afvirkja: ##62#
Á tali
Virkja: **67*símanúmer#
Afvirkja: ##67#
Alltaf
Virkja: **21*símanúmer#
Afvirkja: ##21#
Tímastilltur flutningur
Virkja: **61*símanúmer**tími#
Afvirkja: ##61#
Hægt er að velja hversu langur tími líður áður en hringing flyst en í boði eru 5, 10, 15, 20, 25, 30 og 35 sek. Tíminn er valinn með því að slá inn *61*símanúmer*tími#. Sé enginn tími stilltur flyst símtal alltaf eftir 15 sek.
Símtal bíður
Með þessari þjónustu geturðu svarað hringingu þó þú sért í miðju símtali. Flest símtæki bjóða upp á að stilla þessa þjónustu í sjálfu símtækinu en hana er einnig hægt að virkja með eftirfarandi kóðum: Sláðu inn *43# og hringdu til að virkja þjónustuna. Til að aftengja þjónustuna slærðu inn #43# og hringir.
Númeraleynd
Hægt er að hringja með númeraleynd með því að slá inn #31# [símanúmer] og svo hringja. Í mörgum símtækjum er einnig hægt að virkja fasta númeraleynd í stillingum.